pottarogprik.is

Pottar og prik

Flýtilyklar

Vefverslun - AeroGarden Loftgarður og fræpakkar


  Vörur Verð
AeroGarden loftgarður fyirir inniræktun, svartur.

Ræktaðu kryddjurtir og grænmeti heima í eldhúsi allan ársins hring. Heimagarðurinn er ótrúlega einfaldur í notkun.

Góðar og einfaldar leiðbeiningar fylgja (á ensku)

26.700 kr


Gourmet Herbs kryddjurtir - fræpakki

Gourmet jurtapakkinn inniheldur úrval vinsælla kryddjurta sem bæta fersku og góðu bragði við máltíðina og lyfta hversdagsmatnum á hærra plan.

Hægt er að nota jurtirnar í matseld eftir 3-4 vikur og uppskerutíminn er í 4-5 mánuði.

2.980 kr

International Basil - fræpakki
7 framandi Basil kryddjurtir víðsvegar úr heiminum sem færa matreiðsluna og salatgerðina í nýjar hæðir.
2.980 kr

Salad Greens salatblanda - fræpakki

Fræpakki með 7 salatafbrigðum.ásamt næringartöflum og greinargóðum leiðbeiningum (á ensku)

Salatfræin vaxa í girnileg salatblöð á þremur til fjórum vikum og þá er hægt að njóta uppskerunnar í 3 - 4 mánuði.

2.980 kr

Cascading Petunias - Tóbakshorn

Lífgaðu upp á heimilið með lítskrúðugum, lifandi blómvendi. Njóttu þess að horfa á  stór og falleg bleik, lillablá, blá og hvít blóm.

Blómstra eftir aðeins 4 vikur og halda því áfram í allt að fjóra mánuði !

Fullkomið á skrifstofuna og hvar þar sem gaman er að lífga upp á tilveruna með fallegum blómum.

2.980 kr

AeroGarden loftgarður f. inniræktun, hvítur

Ræktaðu kryddjurtir og grænmeti heima í eldhúsi allan ársins hring. Heimagarðurinn er ótrúlega einfaldur í notkun.

Góðar og einfaldar leiðbeiningar fylgja (á ensku)

26.700 kr


Kirsuberja-tómatar, fræpakki
Ræktaðu gómsæta kirsuberja-tómata heima hjá þér. Njóttu sæta bragðsins af nýtíndum tómötum í salatið, salsasósuna eða beint í munninn hvenær sem er.

Tómatarnir eru tilbúnir til neyslu eftir 10-12 vikur og plöntunar gefa af sér í allt að 6 mánuði.

2.980 kr

Chili pipar fræpakki

Glæsilegur garður með þremur tegundum af bragðmiklum chili pipar sem eykur hitann og kryddið í matargerðina.

Ávextirnir eru tilbúnir til neyslu eftir u.þ.b. tólf vikur og plöntunar geta gefið af sé hundruð pipar-ávaxta í allt að sex mánuði

 

2.980 kr

AeroGarden kynningar myndbönd

Hér getur þú skoðað kynningar-myndbönd af AeroGarden og umsagnir um hann. Ath myndböndin eru á ensku.

Ræktun í AeroGarden versus ræktun í mold:  http://www.youtube.com/watch?v=e-nW5-hY840&feature=related

Kynningarmyndband (fyrir USA markað): http://www.youtube.com/watch?v=v_p4t1Buv-I

0 kr
Perur í AeroGarden 2 stk.

Í loftgarðinn eru notaðar litlar flúor perur sem gefa allt litróf dagsbirtunnar og eru hannaðar til að gefa plöntum allt það ljós sem þær þurfa til að vaxa og dafna. 
Ráðlagt er að skipta um perur í AeroGarden innigarðinum á 6 mánaða fresti fyrir hámarks árangur í ræktuninni.

Pakkinn inniheldur 2 perur.

2.980 kr

Forsáningarbakki

Nú getur þú notað AeroGarden til að forrækta matjurtir og sumarblóm laus við mold og óþrif.Þú getur forræktað allt að 70 plöntur í AeroGarden loftgarðinum þínum innandyra án mikillar fyrirhafnar. Plantaðu svo græðlingunum út í garð um leið þegar veður leyfir. 

Þessi sérhannaði forræktunarbakki notar umhverfisvæn  og næringarrík sáðhylki sem ásamt loftgarðinum tryggir að fræin þín fá lýsingar-, næringar- og vökvunarþarfir sínar uppfylltar, spíra og vaxa hratt svo að útkoman eru hraustar plöntur með góðar rætur.

4.980 kr

Áfylling í AeroGarden forsáningarbakkann

Þú getur notað forsáningarbakkann aftur og aftur með því að fá í hann sáðhylki og næringartöflur. 

75 vistvæn sáðhylki fyrir  forsáningarbakkann ásamt næringartöflum til að koma sumarplöntunum eða matjurtunum þínum á legg áður en þeim er plantað út í garð. 

Athugið að með pakkanum fylgja engin fræ.

2.980 kr

Næringartöflur f. kryddjurtir

Auka næringartöflur í AeroGarden f. kryddjurtir.

Ef garðurinn er enn í fullu fjöri þegar skammturinn af næringartöflunum sem fylgja með fræsettinu er búinn, þá er hægt að framlengja vöxt plantnanna með þessum frætöflum.

 

1.990 kr

Næringartöflur f. salat

Næringartöflur í AeroGarden f. salatplöntur.

Ef garðurinn er enn í fullu fjöri þegar skammturinn af næringartöflunum sem fylgja með fræsettinu er búinn, þá er hægt að framlengja vöxt plantnanna með þessum frætöflum.

1.990 kr

Næringartöflur f. grænmeti

Næringartöflur í AeroGarden f. grænmeti, tómat- og chilipipar-plöntur.

Ef garðurinn er enn í fullu fjöri þegar skammturinn af næringartöflunum sem fylgja með fræsettinu er búinn, þá er hægt að framlengja vöxt plantnanna með þessum frætöflum.

1.990 kr

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf