pottarogprik.is

Pottar og prik

Flýtilyklar

Vefverslun - Bækur


  Vörur Verð
Eldað í hægum takti

Fyrir jólin 2007 kom út stórglæsileg matreiðslubók frá Altungu sem vakið hefur verðskuldaða athygli bæði fyrir sérstaklega fallegar myndir og umbrot og einstaklega góðar uppskriftir.

Í bókinni, sem ber titilinn Eldað í hægum takti, eru uppskriftir að réttum sem tekur langan tíma að matreiða og eru svo sannarlega þess virði að beðið sé eftir þeim. Það má líkja því að elda í hægum takti við það að gefa sér tíma til að stoppa og njóta ilms af rósum. Njótið þess að elda og slappa af á meðan maturinn sýður, steikist eða bakast hægt í eldhúsinu og ilmurinn læðist um húsið.

4.600 kr

Kræsingar jólanna Komnar víða að - Smábók

Um jólin viljum við njóta samvista við ættingja og vini og þá er ekkert til sparað. Þessi litla matreiðslubók getur reynst ykkkur vel við undirbúning jólaboðanna. Í henni er að finna fjölmargar girnilegar uppskriftir bæði að hefðbundnum og nýstárlegum réttum sem gaman er að bjóða upp á, allt frá forréttum að konfektmolunum með kaffinu.

990 kr

Fitusnauðir aðalréttir - Smábók
Gott er að venja sig á að borða fitusnauðan mat og ef menn hreyfa sig reglulega líka má vænta þess að heilsufarið batni. Fitusnauð tilbrigði við þekkta rétti úr bragðgóðu hráefni geta verið meira freistandi en fituríkar frumgerðir þeirra. Þessi bók inniheldur fjölda ljúffengra en fitusnauðra aðalrétta sem eru jafnframt einfaldir í matreiðslu.
990 kr

Fitusnauðir eftirréttir - Smábók
Fitusnautt fæði er lykilatriði fyrir þá sem vilja lifa heilbrigðu lífi en það þarf ekki að vera á kostnað bragðgæðanna. Þið munið komast að því við lestur þessarar bókar að það er hægt að sneiða hjá fitu og njóta samt góðra eftirrétta sem eru punkturinn yfir i-ið og fullkomna góðan málsverð.
990 kr

Fiskmeti fyrir öll tækifæri - Smábók
Mælt er með neyslu fjölbreyttrar fæðu og mörg okkar vilja gjarna auka hlut fiskmetis í fæðinu. Nú á tímum er þetta einfalt mál, fisksalarnir verka fiskinn og undirbúa svo að litlu þarf að bæta við heima í eldhúsi. Aðalatriðið er að ná í góðan fisk og láta síðan reyna á einhverja af þeim spennandi uppskriftum sem þessi bók hefur að geyma.
990 kr

Muffins af ýmsum gerðum - Smábók
Muffins henta vel sem morgunmatur eða millimál á hlaupum í annríki dagsins. Hefðbundið má þó teljast að fá sér muffins með kaffinu. Það er ekki erfitt að finna sér einhverja ástæðu til þess að bíta í freistandi muffins og í þessari bók er af nógu að taka. Uppskriftirnar sumar hverjar lyfta gamla góða muffinsinu upp á hærri hæðir án mikillar fyrirhafnar þó. Með stökkum toppi, kremum, glassúr og fyllingum er hægt að skapa freistandi snilldarverk sem enginn stenst. Prófið sjálf!
990 kr

Máltíð í skál - Smábók
Í þessari bók eru uppskriftir af fjölbreyttum og gómsætum aðalréttum sem lagt er til að bornir séu fram í skálum. Hvort sem það eru pottréttir sem látnir eru malla í marga klukkutíma, bragðbættir með rauðvíni og kryddum að hætti Evrópumanna eða fljótleg salöt sem gerð eru úr fersku hráefni þá er eitthvað sérstaklega gott við það að borða girnilegan mat úr skál. Uppskriftirnar eru bæði austrænar og evrópskar og allar einfaldar og á hvers manns færi.  
990 kr

Sígilt úr kartöflum - Smábók

Nýlega var ár kartöflunnar hjá Sameinuðu þjóðunum og því viðeigandi að þær séu í aðalhlutverki þegar velja á rétti til að matreiða. Í þessari bók eru fjölmargar uppskriftir af ljúffengum og ódýrum kartöfluréttum sem henta hvort sem er á veisluborðið eða sem hversdagsmatur. Kolvetni eru mikilvægur hluti af fjölbreyttu og heilnæmu fæði. Kartöflur innihalda mikið af kolvetnum auk C vítamíns, og steinefna og með því að taka hýðið ekki af innihalda þær einnig trefjar sem eru mikilvægar fyrir meltinguna.  

990 kr

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf