pottarogprik.is

Pottar og prik

Flýtilyklar

Vefverslun - Krydd


  Vörur Verð
La Chinata Reykt paprika

Reykt paprika er ómissandi í spænska rétti eins og päellur og chorizo pylsur en hún er einnig frábær í fjöldann allan af öðrum réttum. Hana má m.a. nota í súpur eins og t.d. gúllassúpu, pottrétti, grillsósur, sem krydd á grillað kjöt, fisk og skelfisk svo eitthvað sé nefnt.

Ef ostateningum er velt upp úr reyktri papriku þá stenst þá enginn.

Reykta paprikan er af þremur gerðum, þ.e. mild (sweet), meðal sterk (bitter sweet) og sterk (hot).

560 kr


Hafsaltið Flor de sal de’s Trenc, fróðleikur

Hafsaltið Flor de sal de’s Trenc er framleitt af fyrirtækinu Gusto Mundial Belearides og eru eigendur þess frumkvöðlar í vinnslu hafsalts á Spáni. Saltið, sem er náttúrulegt hágæða salt, er unnið nálægt Es Trenc ströndinni í Salinas de Levante héraðinu á Mallorka. Sérstök veðurskilyrði þurfa að vera til staðar svo að...meira

0 kr
Hafsalt með svörtum ólífum – olivas negras.
Svörtum calamata ólífum er blandað í saltið sem hentar frábærlega vel með ýmsum réttum af Miðjarðarhafssvæðinu, svo sem pastaréttum, tómat- og mozzarellasalati, carpaccio og crostini.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g ólífur.
.
1.990 kr

Hafsalt með hibiscus.
Saltið er blandað hibiscus sem unnið er úr hibiscusblóminu og hentar vel með andalifur, villibráð, nýjum geitaosti, spínats- eða klettasalati, avocado, laxi, og ýmsu öðru fiskmeti.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g hibiscus.
.
1.990 kr

Hafsalt með Miðjarðarhafskryddum.
Saltið er blandað lífrænt ræktuðu rósmaríni, sari, majorani, timjani og oreganó. Það hentar einstaklega vel með bökuðum kartöflum, lambi, hvítum fiski, kjúklingi, tómötum, grænmeti og pottréttum.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g jurtakrydd.
.
1.990 kr

Hafsalt með Sri Lanka kryddum.
Saltið er blandað austrænum kryddum frá Sri Lanka, þ.e. túrmerikki, cayennepipar, kummin, kóríander, fenníku, fenugreek, kanel, negul, kardimommu og svörtum pipar. Saltið setur endapunktinn þegar kjúklingur er grillaður og lamb eða fiskur  steikt og kitlar bragðlaukana með angan frá Sri Lanka.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g krydd.
.
1.990 kr

Hreint hafsalt.
Saltið er hágæðasalt sem fullkomnar hvern rétt.
Dósin inniheldur 200 g, handunnið salt frá sólinni á Mallorka.
1.990 kr

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf