Ræktaðu kryddjurtir og grænmeti heima í eldhúsi allan ársins hring. Heimagarðurinn er ótrúlega einfaldur í notkun.
Góðar og einfaldar leiðbeiningar fylgja (á ensku)
Loftgarðinum fylgir einn fræpakki, hægt er að velja um Gourmet Herbs blandaðar kryddjurtir, International Basil blandað basil, Salad Greens salatblanda og Cascading Petuinas blómstrandi Tóbakshorn.
Tveir nýjir fræpakkar, kirsuberjatómatar og Chili-pipar.
Hvað er loftræktun?
Loftræktun er ræktunaraðferð án moldar þar sem rætur plöntunar hanga í lausu lofti í umhverfi sem er mjög ríkt af raka og súrefni. Ræturnar fá nákvæmlega rétt magn af næringu, vatni og súrefni og vaxa því mun hraðar en plöntur í jarðvegi. Plönturnar eru auk þess heilbrigðari og innihalda meira magn næringarefna.
AeroGarden loftgarðurinn er líka til í hvítum lit, sjá hvítan
hér.
Stærð
Loftgarðurinn tekur álíka mikið borðpláss og brauðbox og passar undir flesta efri skápa. Lengd botnstykkisins er 40cm en lampans 47cm. Breiðast er tækið um 38cm en hæðin breytileg, minnst 38cm með lampann í lægstu stöðu en upp í 52cm þegar lampinn hefur verið færður upp í efstu stöðu. Loftgarðurinn fæst enn sem komið er eingöngu í þessari einu stærð.
.
Hvað er í kassanum?
Allt sem þú þarft til að byrja ræktun:
1. Innbyggð ljós fyrir plönturnar
- Ljósakerfi sem skaffa plöntunum allt það ljós sem þær þurfa
2. Loftræktunarklefi
- Skaffar plöntunum ræktunarskilyrði sem líkust regnskógum
3. Tölvustýrð ræktun
- Innbyggður örgjörvi sem stillir næringu, ljósmagn og vatn m.v. plöntutegund
- Sjálfvirk ljósastýring
- Sjálfvirk ámynning þegar bæta þarf við vatni eða næringartöflum.
A. Fræhylki
- Fræ í sínum eigin "gróðurhúsum" sem tryggja fljóta spírun.
B. Næringartöflur
- Töflur sem innihalda öll næringarefni sem plönturnar þarfnast.
C. Leiðbeiningar
- Bók sem inniheldur leiðbeiningar um hvernig hirða á um garðinn og ná fram hámarks uppskeru. Inniheldur einnig ýmsar uppskriftir og skemmtileg ráð.
.Það er svona auðvelt að byrja og umhirðan er jafnvel einfaldari, nánast bara ánægjan af því að sjá plönturnar vaxa og nýta sér matjurtirnar í eldamennskuna
7 ástæður fyrir því að kokkar hafa mikið dálæti á AeroGarden loftgarðinum
1.Þú hefur ferskar kryddjurtir (og meira til) við hendina allt árið um kring
-Grunnurinn að góðum mat er ferskt hráefni
-Uppskeran fer beint af plöntunni í pottinn! 2. Sælkeramáltíðir verða til með lítilli fyrirhöfn
-Í heimagarðinum má rækta ljúffengar, ferskar jurtir, salat, tómata, paprikur og fleira sem kryddar upp á og bragðbætir matinn þinn
-Það er leikur einn að útbúa sælkeramáltíð hvenær sem er - á morgnanna, í hádeginu eða á kvöldin! 3. Heimagarðurinn er einfaldur í notkun. Grænir fingur eru ekki skilyrði. -Við tryggjum 100% árangur
-Heimagarðurinn er algerlega sjálfvirkur
-Lætur þig vita hvenær þarf að vökva 4.„Klippt og kokkað“ - handhæg þægindi inni í eldhúsi
-Skorið og matreitt – alltaf við hendina inni í eldhúsi
-Þú hefur á reiðum höndum ferskar heimaræktaðar kryddjurtir og salat, sem og paprikur og tómata beint af stönglinum 5.Engin mold, ekkert illgresi, ekkert vesen – og útkoman er ljúffeng -Allt sem þú þarf fyrir fyrstu ræktunina er innifalið
-Þú vökvar og horfir á meðan garðurinn grænkar 6. Þú sparar tíma og peninga – og heimagarðinum fylgir enginn úrgangur -Ein sáning gefur af sér ríkulega uppskeru sem heldur áfram að vaxa og gefa af sér ferska afurð í 3 til 6 mánuði
-Dýrar kryddjurtir enda ekki lengur í ruslinu 7.Fjölmargir notkunarmöguleikar – Ferskar jurtir (og fleira) úr garðinum þínum
-Heimagarðurinn bíður upp á endalausa möguleika – leyfðu sköpunargleðinni að ráða!